top of page
Search

Mikil samstaða á foreldrafundi Fimleikafélagsins Björk

11 minutes ago
1 min read

Á upplýsingafundi með foreldrum og forráðamönnum 30. september var farið yfir fjárhagsstöðu félagsins, samskipti við Hafnarfjarðarbæ og næstu skref í rekstrinum. Markmiðið er að halda íþróttastarfi félagsins óbreyttu vorið 2027 og tryggja sem besta samfellu fyrir iðkendur.

Foreldrar lýstu áhyggjum af óvissu um framhaldið, en jafnframt kom fram mikil samstaða um mikilvægi starfs Fimleikafélagsins Björk fyrir börn og ungmenni og vilji til að leggja félaginu lið. Áfram verður unnið að lausnum til að styrkja rekstrargrundvöll félagsins og skapa skýrleika um framhaldið.

Við þökkum foreldrum og forráðamönnum fyrir stuðninginn og uppbyggilegt samtal. Frekari upplýsingum verður miðlað eftir því sem málin skýrast.


 
 
bottom of page