Fyrsta mót vetrarins - Haustmót FSÍ!
Fyrsta mót vetrarins fór fram helgina 17.-18.október á Haustmóti í 1.-3.þrepi FSÍ í húsakynnum Ármanns í Laugardalnum.
Fimleikafélagið Björk átti fullt af flottum fulltrúum sem stóðu sig með prýði!
Á laugardeginum var keppt í 1., 2. og 3.þrepi.
Í 3.þrepi kvenna kepptu Amelía Sigurðardóttir, Áróra Lea, Hraftinna Laufdal, Inga Adrianna, Ísabella, Júlía Björt og Ylfa Rún.
Í 3.þrepi karla kepptu þeir Manúel Kató og Þórarinn Steinn.
Í 2.þrepi kvenna kepptu Andrea Líf, Emelía Rós Gautadóttir, Eygló Lind, Herdís Eik og Lísa Karen Viktorsdóttir.
Í 1.þrepi kvenna kepptu Dagný Lea Daníelsdóttir, Elín Máney, Freyja Björg og Kolbrún Hilmarsdóttir.
Í 1.þrepi karla kepptu Atli Fannar Tao og Grímur Þór Jakobsson.
Til hamingju iðkendur og þjálfarar!
Áfram Björk!





