top of page

Fimleikar
Fimleikar á Íslandi samanstanda að mestu leiti af áhaldafimleikum og hópfimleikum. Fimleikafélagið Björk býður upp á áhaldafimleika kvenna og karla, og hópfimleika kvenna.
Áhaldafimleikar
Áhaldafimleikar eru einstaklingsíþrótt. Á örfáum mótum er þó keppt í liðakeppni þar sem æfingar einstaklinga telja saman til stiga í liðakeppni. Áhöldin sem keppt er á í kvennaflokki eru stökk, tvíslá, slá og gólf en í karlaflokki er keppt á gólfi, stökki, svifrá, tvíslá, hringjum og bogahesti. Til að iðkendur njóti sín sem best og fái sem mest út úr æfingum er mikilvægt að þeir séu í hópum með öðrum iðkendum á sama getustigi.Þegar svo er getur þjálfari skipulagt æfingar þannig að þær henti öllum iðkendum sem best og æfingarnar verða þar með bæði ánægjulegri og árangursríkari en ella.Hjá Fimleikafélaginu Björk er notast við stöðumat sem metur styrk, liðleika, hraða, þrek og getu í ákveðnum æfingum til að raða í hópa. Einnig er stuðst við íslenska fimleikastigann sem gefinn er út af Fimleikasambandi Íslands. Við hópaskiptingu er ekki tekið tillit til búsetu, vináttu og/eða fjölskyldutengsla iðkenda eða annara atriða óháðum fimleikum nema iðkendur flokkist á sama getustigi skv. ofangreindu mati.
Hópfimleikar/stökkfimi
Í hópfimleikum er keppt í kvenna, karla og blönduðum flokki (þá eru jafnmargir af hvoru kyni í liðinu) og eru að lágmarki 6 sem keppa í einu á hverju áhaldi. Frammistaða liðsins í heild ákvarðar einkunnina. Hópfimleikar og stökkfimi er hópíþrótt og er íþróttin samblanda af líkamlega krefjandi æfingum og sterkri liðsheild, en þessir tveir þættir eru lykillinn að góðum árangri. Í stökkfimi er keppt í sömu flokkum, þar þarf að lágmarki 4 sem keppa á hverju áhaldi. Keppt er á sömu áhöldum og í hópfimleikum. Undantekningin er að hópurinn þarf ekki að keppa á öllum áhöldunum. Reglurnar eru byggðar á sömu alþjóðlegu reglunum og hópfimleikar en örlítill munur er á undanþágunum. Áhöldin eru þrjú; gólf, trampólín og dýna.Í hópfimleikum er hópaskipting meira í anda þess sem fólk þekkir úr boltagreinum. Skipt er í flokka eftir aldri og fara áherslur í æfingum eftir aldri og getu iðkenda. Eru flokkarnir frá 5. flokk upp í meistaraflokk og aukast erfiðleikakröfurnar eftir því sem líður á. Þeir sem eru lengra komnir keppa samkvæmt alþjóðlegum reglum í hópfimleikum, en þeir sem eru skemmra á veg komnir keppa eftir sömu reglum með tilteknum undanþágum. Í stökkfimi er keppt í tveimur aldursflokkum: yngri og eldri.
Fullorðinsfimleikar
Fullorðins fimleikar er námskeið sem hentar öllum aldurshópum. Þetta námskeið er tilvalið fyrir þátttakendur sem vilja æfa skemmtilega og fjölbreytta íþrótt án þess að keppa í henni. Reynsla í fimleikum er ekki nauðsynleg. Því hentar þetta einnig þeim sem byrja seinna að æfa fimleika.Á æfingum er lögð áhersla á grunn í fimleikum, þrek, þol og teygjur. Einnig er lagt upp úr að iðkendur fái að kynnast hinum ýmsu hliðum sýningarfimleika eins og trampolín, dýna, dans og parkour. Því ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi í heilsueflandi umhverfi.
Athugið: Fullorðinsfimleikar eru skráðir undir almennri deild, þannig að frekari upplýsingar má finna þar.
bottom of page