Iðkendur okkar á Malarcupen í Svíþjóð
Frábær fimleikahelgi í Svíþjóð!
Iðkendur okkar í hópunum K1 og K2 skelltu sér sl. helgi á Malarcupen í Svíþjóð.
Þar var mikið fjör og nóg um lærdóm og allskonar sigra, bæði stóra og smáa. Þær stóðu sig allar með prýði og komnar með fullt af reynslu í reynslubankann. Einhverjar voru að keppa á sínu fyrsta móti erlendis.
Þjálfararnir voru ánægðir með allar stelpurnar og stoltar af dugnaðinum, samstöðunni og góðu stemningunni sem þær sýndu alla helgina.
Hildur Arna Hilmarsdóttir keppti til úrslita á stökki í fullorðinsflokki.
Lísa Karen Viktorsdóttir keppti til úrslita á stökki og slá í stúlknaflokki.
Helma Heiðarsdóttir keppti til úrslita á stökki og gólfi og vann bronsverðlaun á báðum áhöldunum.
Silvía Helga Magnúsdóttir var varamaður á stökki í unglingaflokki og Emelía Rós Gautadóttir varamaður á stökki og gólfi í stúlknaflokki.
Til hamingju iðkendur og þjálfarar!
Áfram Björk!




