Frábær helgi á Þrepamóti 1!
Fràbær fimleikahelgi á Þrepamóti FSÍ!
Sl. helgi 31.okt - 1.nóv fór fram Þrepamót 1 í Fylki þar sem keppt var í 5. og 4.þrepi kk og kvk. Iðkendur okkar frá Fimleikafélaginu Björk stóðu sig öll með prýði á fyrsta móti vetrarins!
Víkingur Örn og Óliver Gauti náðu 4.þrepi kk.
Ásdís Inga og Vigdís Anna náðu 4.þrepi kvk.
Mirra Strand náði 5.þrepi kvk.
Til hamingju iðkendur og þjálfarar!
Áfram Björk!











