top of page
Search

Karlalandslið Íslands Norður-Evrópumeistarar!

5 hours ago
1 min read


Karlalandslið Íslands í áhaldafimleikum skrifaði stóran kafla í íslenska fimleikasögu þegar liðið sigraði Norður-Evrópumótið í áhaldafimleikum helgina 14-15.nóvember!


Dagur Kári Ólafsson stóð uppi sem sigurvegari í fjölþraut karla, á meðan Ágúst Ingi Davíðsson tryggði sér annað sætið - glæsilegur árangur!

Liðið skipuðu þeir:

Ari Freyr Kristinsson, frá Fimleikafélaginu Björk, Dagur Kári Ólafsson, Ágúst Ingi Davíðsson, Jónas Ingi Þórisson, Martin Bjarni Guðmundsson og Atli Snær Valgeirsson, frá Gerplu.


Þessi sigur er sannarlega sögulegur áfangi fyrir íslenska áhaldafimleika og frábær staðfesting á þeirri miklu vinnu, metnaði og framförum sem eiga sér stað í greininni.


Til gamans má geta að Ari Freyr Kristinsson, keppandi, og Kristjana Ýr Kristinsdóttir, dómari fyrir Íslands hönd, eru systkini, en þar að auki var Margrét Lea Kristinsdóttir, þjálfari unglingalandsliðs kvenna, einnig í ferðinni og er það í fyrsta skipti sem systkini fara í sömu landsliðsferðina og sinna öll mismunandi hlutverkum; Ari Freyr sem keppandi, Margrét Lea sem þjálfari og Kristjana Ýr sem dómari.



Innilega til hamingju strákar og þjálfarar með þennan magnaða árangur. Þið eruð landi og þjóð til mikils sóma!



 
 
bottom of page