Silfur á Polish Open G-1 fyrir Leo Anthony Speight
- fbjork
- Sep 24
- 1 min read

Núna um helgina fór fram Polish Open G-1, eitt af sterkustu G-1 mótunum í Olympísku Taekwondo sem gildir til stiga á heimslistanum. Á mótinu kepptu rúmlega 1000 aðilar á háu getu stigi allt frá Olympíu, heims og evrópumeistara verðlaunahöfum til þeirra sem eru að byrja að færa sig inn á hæðsta stig í bardaga.Mótið fór fram í Varsjá. Leo Anthony Speight úr Björk keppti á vegum Íslands á mótinu undir leiðsögn Richard Fairhurst landsliðsþjálfara. Leo gerði sér lítið fyrir og landaði silfri í stærsta flokki mótsins.
Leo byrjaði daginn á að fara á móti Pólverja sem hann hafði tapað fyrir á Presidents Cup á seinasta ári. Í þetta skiptið var það hins vegar Leo sem stóð uppi sem sigurvegari þar sem hann sigraði hann 2-1. Næst fór hann á móti keppanda frá Saudi Arabíu sem hafði unnið tvo sterka keppendur fyrr um daginn. Eftir æsispennandi bardaga stóð Leo upp sem sigurvegari 2-1. Í undanúrslitum mætti hann svo Dana sem hafði þegar unnið silfurverðlaunahafa frá seinasta US open. Leo gerði sér lítið fyrir og vann hann einnig 2-1 og því kominn í úrslit. Í úrslitum mætti hann svo sterkum Spánverja en varð að játa sig sigraðan 2-0 en endaði daginn með silfur sem er glæsilegur árangur á svona sterku móti. Þetta er fjórða G medalía Leo á árinu og sú tíunda í heildina sem er það langmesta af öllum Íslendingum.
Bardagar Leo:
Bardagi 1: 3:42:40
Bardagi 2: 7:22:48
Bardagi 3: 8:27:26
Bardagi 4: 8:56:53