top of page
443820445_1031022295173101_2323692083596325279_n.jpg

Hópaskiptingar

Leikskólahópar:

Börn á aldrinum 2-4 ára þar sem stelpur og strákar æfa saman. Æfingar eru 1x í viku 50 mínútur í senn og eru þær á sunnudagsmorgnum.

Í leikskólahópum læra börnin á salinn og fimleikaáhöldin en við stillum upp leikjastöðvum sem að stuðla að auknum hreyfiþroska og samhæfingu. Lögð er áhersla á bæði fín- og grófhreyfingar, líkamsvitund og jafnvægi, en einnig læra börnin að hlusta og fara eftir fyrirmælum frá þjálfurum.

Við gerum ráð fyrir að foreldrar geti aðstoðað ef með þarf í yngsta aldurshópnum L1. En síðan sleppa foreldrar af þeim hendinni og í L2 mega foreldrar sitja á pöllunum og helst ekki vera á gólfinu. Í elsta hópnum gerum við ráð fyrir að börnin kveðji foreldra inní klefa og gangi síðan með okkur þjálfurum inní sal.  Hægt er að fylgjast með börnunum í gegnum glerið en heitt er á könnunni og ágætis biðstofa frammi ef fólk vill bíða. Börn á þessum aldri eru afar mismunandi þegar kemur að vexti og þroska og við óskum eftir góðu samstarfi við foreldra svo hægt sé að mæta þörfum hvers og eins sem best. Börnin taka hvorki þátt í keppnum né sýningum.

 

Forskólahópar:

Eru fyrir börn á lokaári í leikskóla eða 5 að verða 6 ára.  Í ár verða hóparnir kynjaskiptir á þriðjudögum sem er jafnframt aðalæfingardagurinn, en á föstudögum eru stúlkur og drengir saman. Foreldrar eru ekki með á æfingum og biðjum við þá að virða það að salurinn leyfir ekki áhorf nema í sértilteknum foreldraáhorfsvikum.

Í þessum hópum læra krakkarnir allar helstu grunnæfingar fimleikanna þar sem einblínt er á styrk, liðleika og jafnvægi. Tímarnir eru svo reglulega brotnir upp með leikjum og fjöri. Aðalæfingarsalur hópsins er Andrasalur.

 

Grunn-og framhaldshópar stúlkna:

Áhalda- og hópfimleikar fyrir stelpur á grunnskólaaldri (6-12 ára). Í grunn– og framhaldshópum félagsins fer fram hin eiginlega innleiðing á grunnæfingum fimleika. Helstu markmið í grunn– og framhaldshópum félagsins er að auka styrk, þol og liðleika iðkenda, að auka þekkingu og færni þeirra á æfingum í fimleikum, að auka sjálfstraust iðkenda og síðast en ekki síst undirbúa iðkendur undir keppni á vegum félaga á vinamótum og keppni á vegum Fimleikasambands Íslands. 

Grunn-og framhaldshópar drengja:

Áhaldafimleikar fyrir stráka á grunnskólaaldri (6-12 ára). Í grunn– og framhaldshópum félagsins fer fram hin eiginlega innleiðing á grunnæfingum fimleika. Helstu markmið í grunn– og framhaldshópum félagsins er að auka styrk, þol og liðleika iðkenda, að auka þekkingu og færni þeirra á æfingum í fimleikum, að auka sjálfstraust iðkenda og síðast en ekki síst undirbúa iðkendur undir keppni á vegum félaga á vinamótum og keppni á vegum Fimleikasambands Íslands.

Hópfimleikar:

Í hópfimleikum er skipt í hópa eftir aldri í samræmi við aldursskiptingu frá Fimleikasambandi Íslands sé nægur fjöldi iðkenda. Sé ekki nægur fjöldi iðkenda í flokk eru árgangar sameinaðir og er þá keppt í flokki þeirra sem eldri eru í hópnum. Sé fjöldi í árgangi það mikill að erfitt sé að vinna með einn hóp, er getuskipt í hópa samkvæmt stöðumati. Þær aðstæður kunna að koma upp að hluti hóps geti verið sameinaður öðrum árgangi ef félagið metur að báðir hópar geti hagnast af sameiningu.

Keppnishópar kvenna:

Keppnishópar eru í boði fyrir iðkendur sem keppa í þrepum íslenska fimleikastigans á mótum Fimleikasambands Íslands og á alþjóðlegum vettvangi. Hóparnir eru ætlaðir iðkendum sem hafa verið valdnir í keppnishópa og eru tilbúnir í keppni.

Keppnishópar drengja:

Keppnishópar eru í boði fyrir iðkendur sem keppa í þrepum íslenska fimleikastigans á mótum Fimleikasambands Íslands og á alþjóðlegum vettvangi. Hóparnir eru ætlaðir iðkendum sem hafa verið valdnir í keppnishópa og eru tilbúnir í keppni.

Parkour:

Í Parkour fer hópaskipting fyrst og fremst eftir aldri þar sem ekki er um nema einn flokk að ræða í hverju aldursbili. 9 ára og eldri stendur til boða að vera í parkour.

Skipt er í hópa eftir aldri og ef fjöldi gefur tilefni til frekari skiptingar er getuskipt innan aldursskiptingar. Parkour A er fyrir þá sem eru lengst komnir í íþróttinni en í parkour B og lengra í stafrófinu er skipt eftir aldri.

Lesa meira
bottom of page