top of page
Search

Leo Anthony og Ingibjörg Erla kepptu á sterkum alþjóðlegum stigamótum.



Nýliðna helgi fóru Leo Anthony Speight og Ingibjörg Erla Grétarsdóttir til Bosníu til að keppa á tveimur fyrna sterkum alþjóðlegum stigamótum sem gilda til stiga á heims- og Ólympíulistum World Tekwondo. 


Á laugardag var komið að fyrra móti ferðarinnar European Club Championship G-1. Yfir 1000 keppendur voru skráðir til leiks. Bæði Ingibjörg og Leo sátu hjá í fyrstu umferð sökum stöðu á heimslistanum. Ingibjörg byrjaði svo keppnina í 16 manna úrslitum í 26 manna flokki -62 . Hún byrjar á að sigra keppanda frá Tyrklandi og var því komin áfram í 8 manna úrslit. Þar mætti hún fyrna sterkum keppanda frá Rússlandi. Rússnesski keppandinn vann viðureignina og kláraði svo daginn með gull verðlaunum. Ingibjörg endaði því í 5. sæti á mótinu, glæsilegur árangur.


Leo byrjaði daginn í 32 manna úrslitum í 40 manna flokki -68 þar vann hann Tyrkja örugglega í bardaga 1. Í 16 mann úrslitum mætti hann Rússa eins og Ingibjörg og það fór á sama veg. Leo tapaði viðureigninni og Rússinn fór alla leið og vann gull. Leo endaði því daginn í 9. sæti. Ekki slæmt á móti tvö eftir erfið meiðsl.

Síðast liðinn mánudag var svo komið að Bosnia Open sem einnig er G-1 stiga mót. Rúmlega 1000 keppendur voru skráðir til leiks þar á meðal Olympíufarar og fólk efst á heimslistum. 


Ingibjörg sat einnig hjá í fyrstu umferð og hóf því keppni í 16 manna úrslitum. Þar mætti hún enn einum sterkum rússneskum keppanda. Bardaginn var í járnum allan tíman og hefði getað dottið hvoru megin sem er. Ingibjörg átti ótrúlega flottan bardaga þó svo að hún hafi þurft að játa sig sigraða annað mótið í röð gegn Rússa sem fór alla leið í úrslita bardagann og endaði með silfur. Ingibjörg endaði því í 9. sæti.


Næst var komið að Leo í -68 flokki. Hann sat hjá í fyrstu umferð og byrjaði bardaga 1 í 16. manna úrslitum. Þar mætti hann enn einum rússneska keppandanum en í þetta skiptið vann Leo hann örugglega og var kominn áfram í 8. manna úrslit.

Þar mætti hann mið-ameríkumeistara frá Panama. Leo gerði sér lítið fyrir og stjórnaði bardaganum allan tímann og landaði öruggum sigri og tryggði sig inn í undanúrslit.

Næst var komið að keppanda frá Þýskalandi. Sá dró sig úr keppni vegna meiðsla og sigraði því Leo og tryggði sér sæti í úrslitum mótsins.

Í úrslitum mætti Leo svo fyrnasterkum keppanda frá Serbíu og því miður að játa sig sigraðan 0-2 . Leo endar því daginn með silfur sem er magnað eftir að hafa verið frá í 7 mánuði eftir þrálát hnémeiðsli og þetta aðeins hans þriðja síðan hann kom til baka í byrjun júní. 


Landsliðsfólk okkar hefur verið að gera frábæra hluti undir stjórn Richard Fairhurst landsliðsþjálfara og því eru spennandi tímar frammundan.

Næsta mót hjá landsliðinu verður svo Portugal Open í lok júlí.


Við óskum Leo og Ingibjörgu til hamngju með árangurinn og erum stolt af afreksíþróttafólkinu okkar!


Áfram Björk!

 
 
bottom of page