Klifurdeildin tekur í sumar þátt í umhverfisvakt Hafnarfjarðarbæjar.
Bænum hefur verið skipt í tólf svæði og mun klifurdeildin sjá um svæði norður af Lækjargötu og meðfram Reykjavíkurvegi upp að Engidal. Svæðið skal hreinsað 2 sinnum á árinu og er áhersla lögð á hreinsun opinna svæði, sameignar bæjarbúa. Fyrir framlag sitt og þátttöku fær klifurdeildin styrk til starfseminnar.
Treyst er á að iðkendur og aðstandendur þeirra leggi þessu máli lið. Peningarnir sem safnast á þennan hátt eru m.a. notaðir í félagsstarf deildarinnar.
Umhverfisvaktardagar klifurdeildarinnar verða auglýstir þegar nær dregur.