Forsa Fimleikadeild Klifurdeild Taekwondo Almenningsdeild Fyrirspurnir Tenglar
Upplsingar Aalstjrn Saga flagsins Skjl Verskr tleiga
Innritun
Á döfinni
 
tleiga
Dans- og veislusalur

108,1m2 salur með speglum. Leigist út fyrir veislur og annað. Tekur 70-80 manns í sæti.

Leiga kr. 35.000,-.

ATH. aðeins leigður 30 ára +
Sjá nánar um reglur varðandi leigu hér fyrir neðan. 

Litla Bjrk

250,2 m2 gryfjusalur með trampolín ofl.

Frábær fyrir barnaafmælið!

Sjá nánari upplýsingar um leigu fyrir afmælsiveisluna hér fyrir neðan.

Afmlissalur

Tilvalinn fyrir barnaafmæli og smærri uppákomur.

Sjá nánari upplýsingar um leigu fyrir afmælsiveisluna hér fyrir neðan.

Andrasalur

492,4m2 boltasalur.

Leiga 5.000,- per klst.

ATH. ekki leigður fyrir barnaafmæli.

Mnervusalur

142,1 m2 glæsilegur leikfimisalur með speglum.

Leiga kr. 4.500,- á klst.

ATH. ekki leigður fyrir barnaafmæli.

Bjarkarsalur

1140 m2 fimleikasalur, fullbúinn nýjustu fimleikaáhöldum.

Þessi salur er eingöngu leigður til íþróttafélaga og ef þjálfari er með í salnum. 

Leiga kr. 11.000,- á klst. 

Dans- og veislusalur
Þegar salurinn er leigður verður leigutaki að taka með starfsmann hússins sem ber ábyrgð á húsinu og öryggiskerfi þess.

Greiða þarf þessum starfsmanni sérstaklega þann tíma sem hann er á staðnum (þ.e. laun hans eru ekki innifalin í leiguverðinu.) 

Starfsmaðurinn verður að vera í húsinu þangað til leigutaki hefur klárað að ganga frá öllu og skilið við eins og reglur hússins kveða á um.

Ekki er heimilt að leigja salinn án starfsmanns.

Leigutaki fær salinn tómann   þ.e. sér sjálfur um að stilla upp borðum, stólum og borðbúnaði.

Salurinn er leigður út án veitinga.

Frágangur : 
Leigutaki sér sjálfur um að ganga frá þ.e. borðum, stólum og borðbúnaði á sinn stað í samráði við starfsmanninn.

Leigutaki verður að veislu lokinni að sjá um þrif og að fjarlægja sorp.

Leigutaki getur samið við starfsmann um að sjá um þrif og frágang eftir veislur enda greiðir leigutaki hvort eð er þann tíma sem starfsmaður er á staðnum.

Litla Björk og Afmælissalur
Leigjum út Litlu Björk (LB) og Afmælissalinn (AS) saman fyrir barnaafmæli eða aðra viðburði.  Verð samtals kr. 15 þús. fyrir báða salina.

Fastir tímar í útleigu eftirfarandi:
Mánudaga, fimmtudaga og föstudaga leigjum við salina tvisvar yfir daginn:
Fyrri tíminn:  Kl. 15.00-17.00 (kl. 15.00-16.00 í LB og kl. 16.00-17.00 í AS).
Seinni tíminn:  Kl. 18.30-20.30 (kl. 18.30-19.30 í AS og kl. 19.30-20.30 í LB).

Þriðjudaga og miðvikudaga leigjum við út salina bara einu sinni yfir daginn:
Kl. 18.30-20.30 (kl. 18.30-19.30 í AS og kl. 19.30-20.30 í LB).

Um helgar (laugard. og sunnud.) bjóðum við uppá eftirfarandi tíma:
Fyrsti tími:  Kl. 13.00-15.00 (kl. 13.00-14.00 LB og kl. 14.00-15.00 AS).
Annar tíminn:  Kl. 14.30-16.30 (kl. 14.30-15.30 LB og kl. 15.30-16.30 AS).
Þriðji tími:  Kl. 16.00-18.00 (kl. 16.00-17.00 í LB og kl. 17.00-18.00 í AS).

ATHUGIÐ VEL!   
- Virka daga kl. 18.30-20.30 er alltaf byrjað fyrst í Afmælissalnum (AS) og síðan farið í Litlu Björk (LB).  Aðrir tímar, þ.e. um helgar og kl. 15.00-17.00 virka daga, er fyrst byrjað í LB og síðan farið í AS.
- Klifurveggur innst inni í Litlu Björk er ekki innifalinn í leigu og það gætu verið iðkendur þar á æfingu á sama tíma og afmælin eru. 
- Reglur um umgengni í Litlu Björk hér (sjá á töflu inni í sal)!
- Reglur um umgengni í Afmælissal hér (sjá á töflu inni í sal)!
- Hámarksfjöldi í Litlu Björk er 25 börn.
- Skilyrði að minnst einn fullorðinn einstaklingur gæti hver 10 börn inni í Litlu Björk.
- Leigutaki ber fulla ábyrgð á þeim einstaklingum sem eru á þeirra vegum í Íþróttamiðstöðinni.
- Gætið vel að börnunum því auðvelt er að slasa sig ef ekki er varlega farið.
- Innifalið í leigugjaldi er eingöngu aðgangur að sölum og aðstöðu þeim tengdum.
- Það er í lagi að koma um 15 mín. fyrir leigutíma til að stilla upp borðum og stólum í Afmælissal.  Leigutaki setur sjálfur upp borð og stóla.
- Leigutaki leigir annan salinn í einu (ekki báða í einu).  Umgangur milli sala skal ekki vera meiri en nauðsyn krefur.
- Ekki ætlast til þess að matreitt sé inni í eldhúsi en hægt að fá lánaðar könnur ofl.

Inni í Afmælissalnum (AS) eru m.a. DVD-tæki og sjónvarp.  Þar er fín aðstaða til að spila borðspil og fara í rólegri leiki.  Borð og stólar frammi á gangi og fólk getur nálgast það þar.  Aðgangur er að eldhúsi.  Þar er hægt að fá lánaðar könnur og komast í vask en ekki er ætlast til að fólk matreiði þar inni.  Fólk þarf að koma með sínar eigin veitingar og borðbúnað og auðvitað ganga allir frá eftir sig.

Almennar upplýsingar
Sendið fyrirspurn um leigu á sölum á fbjork@fbjork.is.  Tilgreinið hvaða dag þið hafið áhuga á að leigja, og hugsanlega einnig dag til vara.  Svör munu berast innan sólarhrings frá fyrirspurn.

Foreldrar/forráðamenn ber skylda til að hlíta reglum sala í Íþróttamiðstöðinni.  Reglur og nánari upplýsingar eiga leigutakar að nálgast hjá starfsfólki íþróttamiðstöðvarinnar fyrir viðburð. 

Vert er að geta þessa að leigutaki ber fulla ábyrgð á þeim einstaklingum sem eru á þeirra vegum í Íþróttamiðstöðinni.

Til að tryggja sér salinn verður að greiða fyrir hann viku fyrir tilsettan leigu dag. Hægt er að leggja inná reikning félagsins 1101-15-200758, kt.550110-1130, en viljum við þá benda fólki á að senda kvittun um greiðslu á netfangið: fbjork@fbjork.is (skráið dags. leigu og nafn leigjanda) til að hægt sé að skrá greiðsluna inn samdægurs.

Ef ekki er búið að ganga frá greiðslu á tilsettum tíma þá áskilur félagið sér rétt til þess að leigja öðrum salinn.  Afbókun á sölum þurfa að berast eigi síðar en viku fyrir leigudag.  Að öðrum kosti mun félagið innheimta leigugjald skv. verðskrá.

Frekari upplýsingar fást með því að senda fyrirspurn á tölvupóstfang: fbjork@fbjork.isí eða hringja í síma 565 2311 á opnunartíma skrifstofu (virka daga milli kl. 13.00-16.00).


Nskrning Vornn 2012

ebjrk

Betra Grip / Bridgestone

Atlandsola

AO-lykill

Saffran

Fimleikarehf

Stjrnupopp

Veislulist

M&S

safoldarprentsmija

RioTintoAlcan

Frstundabllinn

rttamistin Bjrk, Haukahrauni 1, 220 Hfj. S. 565 2311, Netfang: fbjork@fbjork.is