|
Grunnupplýsingar: Fimleikafélagið Björk Haukahrauni 1, 220 Hafnarfjörður sími: 565 2311 email: fbjork@fbjork.is heimasíða: www.fbjork.is kt. 550110-1130
Þjónusta: Skrifstofan er opin alla virka daga kl. 13.00-15.30. Sími á skrifstofu er 565 2311. Bendum á að senda fyrirspurnir á fbjork@fbjork.is. Við svörum öllum tölvupóstum. Ef við náum ekki að svara símhringingum flyst símtalið í símsvara og hvetjum við fólk til að leggja inn skilaboð sem verður svarað eins fljótt og hægt er.
Uppgjör æfingagjalda: Farið er þess á leit við foreldra/forráðamenn iðkenda að þeir gangi frá æfingagjöldum annað hvort skv. lið A) eða B) hér að neðan:
A) Millifæra inn á reikn. okkar nr. 1101-15-200757, kt. 550110-1130. Sendið staðfestingu á greiðslu á netfang okkar fbjork@fbjork.is (kt. iðkanda). Sé þessi leið farin er nauðsynlegt að greitt hafi verið 50% æfingagjalda skv. verðskrá fyrir 15. sept. (haustönn) / 15. janúar (vorönn) og 100% fyrir 5. sept. (haustönn) / 5. mars (vorönn).
B) Að fylla út léttgreiðsluseðil (hægt að nálgast á skrifstofu) þar sem hægt er að skipta fjárhæð æfingagjalda niður að vild á mánuði vorannar, og skila inn á skrifstofu til okkar.
Hafi æfingagjöld ekki verið greidd skv. ofangreindum liðum A) og B) fyrir 15. sept./15. jan. verður heildarfjárhæð æfingagjalda innheimt í einu lagi, með þeim kostnaði sem því fylgir, í gegnum heimabanka greiðanda.
Sé greiðandi í vafa um skulda- eða inneignastöðu iðkanda (t.d. vegna styrks frá Hafnarfjarðarbæ) sendið þá fyrirspurn á fbjork@fbjork.is og við sendum ykkur yfirlit yfir hreyfingar og stöðu um hæl. Varðandi endurgreiðslur á styrkjum Hafnarfjarðarbæjar, sjá lið e) í reglum um innheimtu æfingagjalda hér að neðan.
Verðskrá vorannar 2012, sjá hér! Verð fyrir iðkendur miðast við íþrótt og fjölda tíma í viku sem iðkandi æfir.
Reglur um innheimtu æfingagjalda: a) Iðkendur geta ekki hafið æfingar á námskeiði (önn/sumarnámskeið) nema vera skuldlausir eða hafa áður samið um uppgjör eldri skulda. b) Æfingagjöld eru fyrir heil námskeið. Hætti iðkandi fyrir lok námskeiðs fær hann því ekki endurgreitt, nema rök knígi á um annað. c) Hefji iðkandi æfingar á miðju námskeiði greiðir hann æfingagjöld hlutfallslega frá fyrstu æfingu. d) Fimleikafélagið Björk áskilur sér rétt til að fella niður námskeið og endurgreiða iðkendum ef ekki fæst næg þátttaka. e) Foreldrar/forráðamenn þurfa að sækja um styrk fyrir íþróttaiðkun iðkanda hjá Hafnarfjarðarbæ á tilsettum tíma. Félagið mun endurgreiða styrki til iðkenda hafi þeir borist félaginu. Skulda-/eignastaða iðkenda hjá félaginu er leiðrétt um fjárhæð innborgaðra styrkja um leið og þeir eru greiddir inn til félagsins. Foreldrar/forráðamenn/iðkendur geta hvenær sem er fengið yfirlit yfir skulda-/eignastöðu sína hjá félaginu. Styrkurinn miðast við að iðkandinn stundi íþróttina á æfingatímabilinu. f) Fjölskylduafsláttur er 10%. g) Byrjendum er boðið uppá einn prufutíma.
Æfingatímabilið: Haustönn er 16 vikur hjá almennum hópum og hefst í byrjun september (eða lok ágúst) og lýkur með jólasýningu um miðjan desember. Vorönn er 20 vikur hjá almennum hópum og hefst upp úr áramótum og lýkur með vorsýningu seinnipartinn í maí.
Afrekshópar félagsins eru um 18 vikur á haustönn og þeir hópar ganga jafnframt frá æfingagjöldum út ágúst (frí í júlí) við uppgjör á vorönn, þ.e. fyrir 30 vikur.
Greiðslur fyrir leigu á sal: Greiðslu fyrir leigu á sal á að leggja inná reikning nr. 1101-15-200758, kt. 550110-1130. ATH! Munið að senda kvittun fyrir greiðslu á netfang okkar: fbjork@fbjork.is (dags. leigu).
Starfsfólk skrifstofu: Guðjón Guðmundsson, framkvæmdarstjóri, netfang: gutti@fbjork.is Hafsteinn Þórðarson, bókhald, fjárreiður og innheimta, netfang: hafsteinn.th@simnet.is
Þjónusta í íþróttamiðstöð: Í afgreiðslu Íþróttamiðstöðvarinnar er hægt að nálgast óskilamuni. Síminn þar er 564 0730. Einnig ber að tilkynna öll veikindi þangað. Hægt að greiða fyrir leigu á sal, í pottinn og í gufu, í andyri.
Uppbygging félagsins: Lög félagsins er hægt að nálgast hér!
Handbók félagsins er hægt að nálgast hér (ATH. Uppfærsla á handbók er fyrirhuguð fyrir vorönn 2011)! Í inngangi handbókar stendur: "Hlutverk þessarar handbókar er að vera stjórnum og starfsmönnum Fimleikafélagsins Björk sem og iðkendum hjá félaginu og foreldrum/forráðamönnum þeirra til upplýsinga um skipulag og starfsemi Fimleikafélagsins Björk."
Auk þessa gefa deildir félagsins út upplýsingarit um markmið og innra skipulag deilda. Þau má nálgast hér: Fimleikadeild, klifurdeild, taekwondodeild, almenningsdeild.
|