 |
Stelpur og strákar æfa saman. Nemendur verða að hafa náð 3 ára aldri eða vera á þriðja ári til þess að geta byrjað í leikskólahóp. Þátttaka foreldra er skilyrði.
1 sinni í viku 50 mín. í senn. 13 vikur á haustönn og vorönn.
L1 3 ára sunnudagar kl. 10:00-10:50 L2 4 ára sunnudagar kl. 11:00-11:50 L3 5 ára sunnudagur kl. 12:00-12:50
Markmið Nemendur læra almennar leikfimisæfingar í leikjaformi sem miða að auknum hreyfiþroska og samhæfingu. Lögð er áhersla á bæði fín- og grófhreyfingar, líkamsvitund og jafnvægi. Einnig læra nemendur að hlusta og fara eftir fyrirmælum frá þjálfurum.
Keppni Nemendur taka hvorki þátt í mótum né sýningum.
Félagsstarf Síðasta kennsludag á hvorri önn er opinn dagur þar sem foreldrum og systkinum er boðið að taka þátt og ýmsar óvæntar uppákomur. Reynt er að brjóta upp starfið 1x á önn ýmist með danskennslu, útivistardegi eða öðru. Nemendum stendur einnig til boða að taka þátt í öðru skipulögðu félagsstarfi á vegum félagsins
|