 |
 |
11-05-2010 - Krakkamót!!!
Krakkamót í poomse
Taekwondo-deild Ármanns blæs til krakkamóts í poomse þann 19. maí kl 16. Við áætlum að mótinu verði lokið kl 18. Þetta er frábært tækifæri fyrir alla, sérstaklega þá sem hafa aldrei keppt eða horft á mót. Það er því afar mikilvægt að allir taki þátt til að öðlast reynslu enda þátttaka á mótum afar mikilvægur hluti af þroska hvers iðkanda í íþróttinni.
Mótið er haldið í okkar æfingasal og opnar salurinn kl 15:30. Keppt verður í barnaflokkum í poomse.
Fyrirkomulag: Mótið verður með afslöppuðu fyrirkomulagi þar sem markmið mótsins er að ALLIR fá góða reynslu og skemmtun. Við ætlum að skipta keppendum í flokka á mótsstað eftir beltagráðu og aldri. Mótið er fyrir alla þá sem eru yngri en 16 ára (aldur miðast við mótsdag). Keppt verður í einstaklings og hóp (3 eða fleiri) poomse. Stefnt er að því að allir fái tvær umferðir í einstaklingskeppninni. Taka má hvaða form sem er, bæði upp fyrir sig og lægra en beltagráða þeirra segir til um. Hærri einkunn er gefinn fyrir poomse sem er hærra en er fyrir beltagráðu. Lág belti (appelsínugult og neðar) mega endurtaka form milli umferða en hærri belti verða að gera annað form í umferð tvö heldur en í eitt.
Flokkaskipting hefst klukkan 15:45 og lýkur 16:00. Keppendum er ráðlagt að mæta í síðasta lagi 15:30.
Allir þátttakendur fá verðlaunapening.
Þátttökugjald er kr. 1000 fyrir þau félög sem tóku þátt í síðasta krakkamóti Ármanns en kr. 2000 fyrir aðra. Vinsamlegast greiðið á mótsdag við skráningu (þeir sem kjósa að leggja inn á reikning félagsins eiga að koma með útskrif af greiðslu og munið að skrá nafn barns í skýringu). Stefnan er að grilla pylsur í lok mótsins fyrir alla og fær þá hver þátttakandi pylsu.
Með form-kveðju frá Taekwondo-deild Ármanns
|