14-04-2010 - Æfingabúðir!
Helgina 17. – 18. apríl verða æfingabúðir hjá okkur í Björk. Þjálfari er Master Cesar Rodriguez. Master Cesar var í landsliði Mexíco í 15 ár. Ásamt því að hafa sjálfur unnið tvisvar sinnum til silfurverðlauna á HM hefur hann átt þátt í því að koma nemendum sínum á pall á Olympíuleikum og heimsmeistaramótum. Hér er því um að ræða einstakan þjálfara með gríðarlega mikla reynslu. Hann er með keðju af skólum í Mexico undir nafninu Absolut. Mæli ég með því að sem flestir reyni að nýta sér þetta tækifæri og æfa með okkur um helgina.
Skipt verður í 3 hópa eftir aldri og æfir hver hópur 3 sinnum yfir helgina.
Verð fyrir helgina er 3500 kr. Skráningar skal senda á aaj@simnet.is. Fram þarf að koma nafn, aldur, belti og símanúmer. Gjald greiðist inn á 311 – 26 – 41279 kt. 0412794359 með nafni barns í skýringum.
Vonum við að sem flestir sjái sér fært að mæta þrátt fyrir stuttan fyrirvara
Hópur 1: 6 – 9 ára
Hópur 2: 10 – 13 ára
Hópur 3: 14 ára og eldri.
Laugardagur
9:15 – 10:00 Hópur 1
10:15 – 11:45 Hópur 2
12:00 – 13:30 Hópur 3
14:15 – 15:45 Hópur 2
16:15 – 17:15 Hópur 1
17:15 – 18:45 hópur 3
Sunnudagur
9:00 – 10:00 Hópur 1
10:15 – 11:45 Hópur 2
12:00 – 13:30 Hópur 3
|