Forsa Fimleikadeild Klifurdeild Taekwondo Almenningsdeild Fyrirspurnir
Upplsingar Aalstjrn Saga flagsins Skjl Verskr Leiga slum
Forsa
21-05-2012 - tivistardagur Heimrk - Allir velkomnir! - Sj dagskr hr

Á miðvikudaginn í næstu viku þ.e. þann 30. maí ætlum við að halda ÚTIVISTARDAG í Heiðmörk.  Allir iðkendur í öllum deildum félagsins eru velkomnir, foreldrar líka.

Þeir sem ætla að mæta skrái sig sem fyrst á fbjork@fbjork.is, í síðasta lagi fyrir hádegi mánudaginn 28. maí.  Það er mikilvægt fyrir okkur að vita fjölda þátttakenda fyrirfram.

Dagskrá dagsins verður sem hér segir:
Kl. 15.00 - Rúta leggur af stað frá Íþróttamiðstöðinni Björk
Kl. 15.15-16.45 - Hlaup, leikir og fleira skemmtilegt í Heiðmörk
Kl. 17.30 (upphaflega áætlað kl. 17) - Komið til baka í Íþróttamiðstöðina Björk.

Fyrir þá sem vilja hlaupa (vonandi sem flestir) eru þrjár leiðir í boði:
Bláa leiðin, ca. 5 km (fara út úr rútu við Maríuvelli)

Rauða leiðin, ca. 2,5 km.
Gula leiðin, ca. 1 km.
Hægt að skrá sig í hlaupin á æfingu (hjá Hlín Árnad. eða hjá þjálfara sínum).
Verðlaun fyrir alla sem taka þátt í hlaupum.

Rútan keyrir hópinn upp að bílaplaninu. 

Frítt í rútuna fyrir börnin, 500 kr. fyrir fullorðna.

Allir verða að passa að klæða sig eftir veðri og hafa með sér smá nesti.  Farið verður í leiki á stóra túninu og ratleiki fyrir yngri börnin inni í skógi.

Starfsfólk Fimleikafélagsins Björk sem mun mæta verða Hlín Árnad., Hildur Vilhelmsd., Ásta Björk, Þórunn, Hildur Ketilsd., Andrea, o.fl.

Hvetjum alla til að mæta!


Sumarnmskei 2013

Nori

Viburadagatal

Atlandsola

AO-lykill

Fimleikarehf

Stjrnupopp

Veislulist

M&S

safoldarprentsmija

RioTintoAlcan

rttamistin Bjrk, Haukahrauni 1, 220 Hfj. S. 565 2311, Netfang: fbjork@fbjork.is