 |
 |
26-01-2010 - Niðurgreiðsla Hafnarfjarðar
Ágætu foreldrar/forráðamenn Það hefur örlað á óánægju hvernig fimleikafélagið Björk stendur að innheimtu æfingagjalda núna á vorönn og þá sérstaklega hvernig félagið hefur meðhöndlað niðurgreiðslur frá Hafnarfjarðabæ. Síðast liðið haust var ákveðið að nýta íbúagátt Hafnarfjarðar við skráningu á niðurgreiðslum. Sú leið á eftir að slípast til, en hún mun áreiðanlega reynast vel fyrir alla aðila; foreldra/forráðamenn, Hafnarfjarðabæ og íþróttafélögin þegar fram í sækir. Stjórn fimleikafélagsins Björk, ákvað í lok desember að senda út reikninga á fullu verði, þ.e. án niðurgreiðslu á alla iðkendur núna í janúar. Það var gert, m.a. í ljósi slæmrar reynslu á haustönn, svo og að ekki lá ljóst fyrir hjá félaginu á þeim tíma hvernig staðið yrði að niðurgreiðslum á vorönn. Reikningar félagsins voru sendir í heimabanka forráðamanna í febrúar til innheimtu. Með þessu kemur í raun skýrt fram hvert raunverulegt æfingagjald er, og niðurgreiðslur Hafnarfjarðabæjar verða enn sýnilegri en ella. Einnig var tilkynnt um að félagið mundi endurgreiða stuðning Hafnarfjarðabæjar þegar félagið hefði fengið hann greiddan. Félagið hefur nú endurskoðað þennan þátt í endurgreiðslunum, og býður nú forráðamönnum um að senda félaginu kvittun um skráningu í íbúagáttina og greiða mismuninn á greiðsluseðlinum og niðurgreiðslunni beint inná reikning félagsins. Í framhaldi af því fellir félagið niður greiðsluseðilinn í bankanum. Það er okkur mikilvægt að greiðslur æfingagjalda skili sér fljótt og vel, svo félagið geti staðið við skuldbindingar sínar m.a. gagnvart þjálfurum. Með kærri kveðju, Ingvar Kristinsson, formaður Fimleikafélagið Björk
|